Strætó Margir nýttu sér frítt fargjald á höfuðborgarsvæðinu í gær.
Strætó Margir nýttu sér frítt fargjald á höfuðborgarsvæðinu í gær. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Margir nýttu sér þjónustu Strætó í gær og segir Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, að vagnstjórar fyrirtækisins hafi tekið eftir mun færri einkabílum á götunum. Bíllausi dagurinn var í gær og af því tilefni var frítt í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og með landsbyggðarstrætó

Margir nýttu sér þjónustu Strætó í gær og segir Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, að vagnstjórar fyrirtækisins hafi tekið eftir mun færri einkabílum á götunum.

Bíllausi dagurinn var í gær og af því tilefni var frítt í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og með landsbyggðarstrætó. Fólk var hvatt til að hvíla einkabílinn og nota fjölbreytta og vistvæna ferðamáta. Dagurinn var hluti af Evrópsku samgönguvikunni sem hófst á laugardag.

Strætó hvatti fólk til þess að kynna sér möguleika þess að ferðast um höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina með strætó. Um leið og fleiri nýta sér ferðir vagnanna léttir á umferð og meiri áreiðanleiki næst í strætókerfið.

„Fólk er þá annaðhvort að vinna heima eða nýta sér góða veðrið og hjóla,“ segir Jóhannes, sem er ekki með tölu á því hvort farþegar í vögnunum hafi verið fleiri í gær en aðra daga.

Frítt á Akureyri frá 2007

Hann segir markmiðið með deginum að fá fólk til að kynna sér möguleika þess að ferðast um höfuðborgarsvæðið og landið allt með strætó.

Aðspurður segist Jóhannes hafa talað fyrir flýtigjöldum, sem eru hluti af samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Flýtigjald er gjald sem tekið er af tiltekinni ferð eða umferð og gjöldin nýtt til að flýta framkvæmdum sem annars gætu tekið lengri tíma.

Áætlað var að leggja umferðar- og flýtigjöld á höfuðborgarsvæðið árið 2022, en ekkert hefur orðið úr þeim áformum.

Þegar fregnir bárust af bíllausa deginum í gær barst Morgunblaðinu ábending frá kynningarstjóra Akureyrarbæjar um að frítt hefði verið í strætó þar í bæ allt frá árinu 2007.