Staðan í dag Vinnupallar eru enn við húsið og talsverð vinna eftir við það.
Staðan í dag Vinnupallar eru enn við húsið og talsverð vinna eftir við það. — Morgunblaðið/sisi
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Hin nýja skrifstofubygging Alþingis er talsvert á eftir áætlun. Áformað var að taka hana í notkun áður en þing hæfist á þessu hausti en það gekk ekki eftir. Óljóst er á þessari stundu hvenær framkvæmdum lýkur.

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Hin nýja skrifstofubygging Alþingis er talsvert á eftir áætlun. Áformað var að taka hana í notkun áður en þing hæfist á þessu hausti en það gekk ekki eftir. Óljóst er á þessari stundu hvenær framkvæmdum lýkur.

„Enn er þó verið að vinna að frágangi við nýbygginguna og ég ætla því ekki að fara með nákvæma dagsetningu á því hvenær flutt verður. Ég tel þó fullvíst að við munum flytja inn áður en haustþingi lýkur.“

Þetta sagði Birgir Ármannsson forseti Alþingis við setningu 154. löggjafarþingsins 12. september sl. Haustþinginu lýkur rétt fyrir jól en varla mun dragast svo lengi að ljúka framkvæmdum.

Nær er að tala um einhverjar vikur, eins og Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri Alþingis sagði í viðtali við Morgunblaðið á dögunum.

Leitað var skýringa hjá Rögnu hvað hefði tafið framkvæmdirnar.

„Verkið hefur tafist vegna ýmissa þátta eins og gengur og gerist, meðal annars vegna áhrifa heimsfaraldursins og stríðsins í Úkraínu. Uppsteypa hússins var flókin og tók mun lengri tíma en gert var ráð fyrir, það voru tafir vegna glugga og svo er steinklæðningin utan og innan í húsinu einstök en einnig tímafrek.“

Er það rétt sem talað hefur verið um að mistök hafi verið gerð með kaup á gluggum?

„Miklar kröfur eru gerðar varðandi glugga í húsinu hvað varðar vind- og vatnsálag. Verktaki leggur til og gengur frá gluggum í húsið. Fyrstu gluggarnir sem komu stóðust ekki álagspróf og þurfti því að gera á þeim breytingar til þess að þeir að þeir uppfylltu allar kröfur.“

Hver var upphafleg kostnaðaráætlun verksins og hver er kostnaðaráætlunin í dag?

„Upphafleg kostnaðaráætlun árið 2020 var 5,5 milljarðar króna. En í fyrra var ákveðið að bæta við fundarherbergjum á 5. hæð, sem áttu að vera byggð við síðar, og lokun vinnurýma starfsfólks þingflokka á 3. og 4. hæð. Áætlaður kostnaður vegna þessa er rúmlega 250 milljónir. Áætlaður heildarkostnaður er í dag um sex milljarðar króna. Munar þar mest um að verðlagshækkanir eru umfram þær hækkanir sem gert var ráð fyrir í upphaflegri kostnaðaráætlun. Verðbætur hafa tvöfaldast m.v. það sem reiknað var með hvað varðar framkvæmdarhlutann. Sennilega er það verkefninu til happs að það var komið á framkvæmdastig áður en heimsfaraldurinn skall á og búið að kaupa ýmis aðföng sem hækkuðu gríðarlega í verði stuttu seinna. En þetta mun allt liggja betur fyrir við verklok þegar Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir hefur tekið saman endanlegt uppgjör á verkinu.“

Húsið er 6.518 fermetrar

Í nýbyggingunni, sem rís á milli Kirkjustrætis, Vonarstrætis og Tjarnargötu á Alþingisreitnum, verða skrifstofur þingmanna, fundar- og vinnuaðstaða fyrir þingflokka og starfsfólk þeirra, fundarherbergi fastanefnda og vinnuaðstaða fyrir starfsfólk nefndanna. Öll þessi aðstaða er nú í leiguhúsnæði. Þá er gert ráð fyrir mötuneyti í nýbyggingunni. Húsið verður alls 6.518 fermetrar að stærð.

Tilboð í fyrsta áfanga nýbyggingarinnar, jarðvegsframkvæmdir, voru opnuð 22. október 2019. Þá var tilkynnt á vef Alþingis að verklok væru áætluð í mars 2023.