Doja Cat í essinu sínu á sviðinu á dögunum.
Doja Cat í essinu sínu á sviðinu á dögunum. — AFP/Dia Dipasupil
Umdeild Doja Cat er með umdeildari mönnum í rappheimum (sumir telja hana meira að segja ekki þess umkomna að kalla sig rappara). Undanfarin misseri hefur farið mun meira fyrir henni á samfélagsmiðlum en í tónleikasölum og oftar en ekki er okkar kona …

Umdeild Doja Cat er með umdeildari mönnum í rappheimum (sumir telja hana meira að segja ekki þess umkomna að kalla sig rappara). Undanfarin misseri hefur farið mun meira fyrir henni á samfélagsmiðlum en í tónleikasölum og oftar en ekki er okkar kona í hnútukasti við sína eigin aðdáendur, sem hefur víst fækkað nokkuð, alltént á samfélagsmiðlum. Á dögunum kom fjórða breiðskífa Doja Cat út, Scarlet, og hefur mælst prýðilega fyrir, alltént gefur gagnrýnandi breska blaðsins Independent henni fjórar stjörnur af fimm mögulegum.