Mike Muir lætur fyrir sér fara.
Mike Muir lætur fyrir sér fara. — AFP/Torben Christensen
Fall Mike Muir, söngvari bandaríska málmbandsins Suicidal Tendencies, varð fyrir því óhappi á dögunum að falla fram af sviðinu á tónleikum bandsins í Kaliforníu. Öryggisverðir brugðust skjótt við og hjálpuðu kappanum aftur upp á sviðið og virtist honum ekki hafa orðið meint af

Fall Mike Muir, söngvari bandaríska málmbandsins Suicidal Tendencies, varð fyrir því óhappi á dögunum að falla fram af sviðinu á tónleikum bandsins í Kaliforníu. Öryggisverðir brugðust skjótt við og hjálpuðu kappanum aftur upp á sviðið og virtist honum ekki hafa orðið meint af. Hitt var þó frekar vandræðalegt, að þetta skyldi gerast meðan Muir var að syngja gamla slagarann You Can´t Bring Me Down.