Framkvæmdir Sökkull að sæluhúsinu, sem er austarlega á Mosfellsheiði, er tilbúinn og nú verið að hlaða upp veggi þess. Því verki á að ljúka í haust. Þak verður svo sett á bygginguna á næsta ári. Myndin var tekin nú fyrr í vikunni.
Framkvæmdir Sökkull að sæluhúsinu, sem er austarlega á Mosfellsheiði, er tilbúinn og nú verið að hlaða upp veggi þess. Því verki á að ljúka í haust. Þak verður svo sett á bygginguna á næsta ári. Myndin var tekin nú fyrr í vikunni. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Að frumkvæði Ferðafélags Íslands stendur yfir endurbygging á gömlu sæluhúsi austarlega á Mosfellsheiði. Bygging þessi var upphaflega reist um 1890 við nýjan veg til Þingvalla sem gengur núna undir nafninu Gamli Þingvallavegurinn

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Að frumkvæði Ferðafélags Íslands stendur yfir endurbygging á gömlu sæluhúsi austarlega á Mosfellsheiði. Bygging þessi var upphaflega reist um 1890 við nýjan veg til Þingvalla sem gengur núna undir nafninu Gamli Þingvallavegurinn. Húsið var byggt úr tilhöggnu grágrýti, var 7x4 m að flatarmáli og veggir 1,80 m á hæð. Á því var risþak, sennilega klætt með bárujárni, og útidyr voru á langvegg. Áformað er að endurreist bygging verði tilbúin á næsta ári.

Árbók Ferðafélags Íslands árið 2019 er um Mosfellsheiði. Í bókinni segja höfundarnir þrír, þau Bjarki Bjarnason, Jón Svanþórsson og Margrét Sveinbjörnsdóttir, frá sæluhúsinu á heiðinni. Þar var einnig greint frá því að uppi væru hugmyndir um endurbyggingu þess í upprunalegri mynd, eins og nú hefur raungerst.

Til lífs í vályndum veðrum

Þegar Ferðafélag Íslands afréð að taka þetta verkefni að sér var Bjarki, sem er sagnfræðingur og býr í Mosfellsdal, ráðinn umsjónarmaður þess. Í samtali við Morgunblaðið segir Bjarki að á ofanverðri 19. öld hafi töluvert verið byggt af húsum hérlendis úr tilhöggnu grágrýti og sæluhúsið á heiðinni sé í þeim flokki.

„Steinhúsin voru eins konar millispil, torfhús höfðu verið allsráðandi um aldir en steinsteypt hús voru reist á nýrri öld. Sæluhúsið á Mosfellsheiði gerði sitt gagn í nokkra áratugi, það var jafnvel ferðamönnum til lífs að komast þangað í skjól í vályndum veðrum,“ segir Bjarki.

Fyrir Alþingishátíðina á Þingvöllum árið 1930 var nýr þjóðvegur lagður til Þingvalla og var sá á svipuðum slóðum og akvegurinn sem liggur þangað nú. Gamli Þingvallavegurinn varð minna notaður en áður og einnig sæluhúsið, svo viðhaldi var ekki sinnt. Þak, gluggar og hurð urðu veðrinu og tímanum að bráð. Steinhlaðnir veggirnir féllu undan eigin þunga en hafa alltaf verið sýnilegir á sínum upphaflega stað.

Áfram til austurs

En hvar var eða er sæluhúsið? Fyrst liggur leiðin að fólkvanginum í Bringum efst í Mosfellsdal, hvar ekið er áfram til austurs um slóða meðfram Nesjavallalínu. Þarna er ekið inn til landsins eftir línuvegi sem Gamli Þingvallavegurinn þverar á háheiðinni. Svo er beygt inn á hann og þá eru tæpir tveir kílómetrar að sæluhúsinu.

Styrkt af Húsafriðunarsjóði

„Þetta hús hefur mikið byggingarsögulegt gildi og er sannarlega þess virði að það verði varðveitt,“ segir Bjarki. Sama segir hann eiga við um Gamla Þingvallaveginn sem lá þvert yfir heiðina frá Geithálsi að Almannagjá. Nú séu líka uppi hugmyndir um friðlýsingu hans.

„Arkitektastofan Argos vann tillögur að endurgerð hússins og Húsafriðunarsjóður hefur veitt rúmlega þrjár milljónir króna til þessara framkvæmda sem er um þriðjungur af kostnaðaráætlun verksins. Mér finnst það afar spennandi að vinna að þessari uppbyggingu og gaman að sjá húsið reist að nýju eftir ár og öld,“ tiltekur Bjarki.

Þegar öll tilskilin leyfi voru í höfn hófst endurreisnin á heiðinni á síðasta ári. Leitað var til tvíburabræðranna Ævars múrsmiðs og Örvars húsasmiðs Aðalsteinssona í Mosfellsbæ og óskað eftir því að þeir tækju endurbygginguna að sér. Þeir hafa góða verkþekkingu á þessu sviði og mikinn áhuga á málinu. Hafa auk þess starfað sem fararstjórar fyrir FÍ.

Í fyrrasumar voru hleðslusteinarnir teknir og raðað við hliðina á rústinni eftir ákveðnu kerfi. Síðan var grafið niður á klöpp og grunnurinn fylltur af grús. Á nýliðnu sumri var aftur tekið til óspilltra málanna og steyptur sökkull fyrir húsið. Á þeim grunni hafa veggirnir verið endurhlaðnir á sama hátt og gert var fyrir 130 árum. Þeir Ævar og Örvar hafa unnið þetta verk, með þeim hafa starfað Bjarni Bjarnason, fjallkóngur og verktaki á Hraðastöðum í Mosfellsdal, og Unnsteinn Elíasson, hleðslumeistari frá Ferjubakka í Borgarfirði.

„Veggjahleðslu lýkur í haust en frágangur og frekari smíði bíður næsta sumars. Þá þarf að smíða þak og fleira á húsið. Allar teikningar liggja fyrir og voru forsenda þess að FÍ fengi styrk frá Minjastofnun,“ segir Bjarki.

Hugað að fróðleik

Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands, segir endurbyggingu sæluhússins mikilvægt viðfangsefni.

„Hlutverk FÍ er, jafnhliða því að skipuleggja ferðir, að huga að fróðleik og sögulegum rótum. Framkvæmdirnar á Mosfellsheiði eru mjög í þeim anda og eins endurbæturnar á skálanum í Hvítárnesi, byggingu sem margir tengja sterkt við sögu félagsins,“ segir Páll.

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson