Dave Mustaine hress að vanda.
Dave Mustaine hress að vanda. — AFP/Emma McIntyre
(Ó)sætti Listinn yfir fyrrverandi liðsmenn Megadeth er álíka langur og símaskráin á Selfossi. Dave Mustaine, forsprakki bandaríska þrassbandsins, sem hefur rekið mann og annan gegnum tíðina var spurður að því á útvarpsstöðinni Riff X hvort köldu andaði milli hans og þessara manna

(Ó)sætti Listinn yfir fyrrverandi liðsmenn Megadeth er álíka langur og símaskráin á Selfossi. Dave Mustaine, forsprakki bandaríska þrassbandsins, sem hefur rekið mann og annan gegnum tíðina var spurður að því á útvarpsstöðinni Riff X hvort köldu andaði milli hans og þessara manna. Hann svaraði því til að það ætti aðeins við í örfáum tilvikum. „Fólk sem er rekið er mjög sjaldan ánægt með það,“ sagði Mustaine og bætti við að þeir sem væru bitrastir minntu einna helst á það þegar þeir væru að gefa út nýja plötu eða fara af stað með nýtt verkefni. „Ég hef alltaf hugsað með mér tannlausir hundar gelta hæst og ég læt þetta því ekki trufla mig.“