Ewa Marcinek
Ewa Marcinek
Skáldunum Ewu Marcinek og Natöshu S. var veitt viðurkenning Íslenskrar málnefndar 2023 á málræktarþingi sem haldið var í vikunni. Viðurkenninguna fengu þær fyrir að breiða út íslensku sem bókmenntamál þeirra sem ekki hafa hana að móðurmáli

Skáldunum Ewu Marcinek og Natöshu S. var veitt viðurkenning Íslenskrar málnefndar 2023 á málræktarþingi sem haldið var í vikunni.

Viðurkenninguna fengu þær fyrir að breiða út íslensku sem bókmenntamál þeirra sem ekki hafa hana að móðurmáli. Ewa og Natasha hafa meðal annars sent frá sér eigin ljóðabækur, ritstýrt ritgerðasafninu Skáldreka og komið að fleiri útgáfum og viðburðahaldi.