Elisabeth Moss leikur í myndinni.
Elisabeth Moss leikur í myndinni. — AFP/Valerie Macon
Spark Fáir leikstjórar eru í meiri tísku nú um stundir en hinn nýsjálenski Taika Waititi. Nýjasta mynd hans, Next Goal Wins, var forsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto fyrir skemmstu og er farin að fá ljómandi fína dóma

Spark Fáir leikstjórar eru í meiri tísku nú um stundir en hinn nýsjálenski Taika Waititi. Nýjasta mynd hans, Next Goal Wins, var forsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto fyrir skemmstu og er farin að fá ljómandi fína dóma. Þykir mannleg og fyndin og aðgengilegri en fyrri verk leikstjórans. Myndin byggist lauslega á sögu eins aumasta knattspyrnuliðs sögunnar, landsliðs Samóaeyja, sem vann til að mynda það frækna afrek að tapa 31:0 fyrir Ástralíu í undankeppni HM. Waititi sækir einnig innblástur í heimildarmynd um sama efni. Meðal helstu leikenda eru Michael Fassbender, Elisabeth Moss og Kaimana.