Góð Anna Úrsúla Guðmundsdóttir lék með Íslandi á HM 2011.
Góð Anna Úrsúla Guðmundsdóttir lék með Íslandi á HM 2011. — Morgunblaðið/Eggert
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir er í 35 manna hópi sem þjálfarateymi íslenska landsliðsins í handbolta valdi fyrir leikmenn sem koma til greina í landsliðshópinn fyrir HM 2023 sem fram fer í Noregi, Svíþjóð og Danmörku í nóvember og desember

Anna Úrsúla Guðmundsdóttir er í 35 manna hópi sem þjálfarateymi íslenska landsliðsins í handbolta valdi fyrir leikmenn sem koma til greina í landsliðshópinn fyrir HM 2023 sem fram fer í Noregi, Svíþjóð og Danmörku í nóvember og desember. Anna var búin að leggja skóna á hilluna, en hefur leikið vel með Val á leiktíðinni. Ísland er í riðli með Frakklandi, Slóveníu og Angóla. Hópinn má sjá á mbl.is/sport.