— AFP
Sagt er að Taylor Swift hafi týnt demanti úr 1,6 milljóna króna hring á VMA's-tónlistarverðlaunahátíðinni fyrr í mánuðinum. Stutt myndbönd af Taylor með hringinn þar sem demanturinn er augljóslega farinn hafa farið sem eldur í sinu á samfélagsmiðlum

Sagt er að Taylor Swift hafi týnt demanti úr 1,6 milljóna króna hring á VMA's-tónlistarverðlaunahátíðinni fyrr í mánuðinum. Stutt myndbönd af Taylor með hringinn þar sem demanturinn er augljóslega farinn hafa farið sem eldur í sinu á samfélagsmiðlum. Hringurinn er átján karata, úr gulu gulli og er hann svokallaður „vintage“-hringur frá Van Cleef and Arpels. Á einum tímapunkti kvöldsins sést Taylor ræða við starfsfólk hátíðarinnar haldandi hringnum á lofti og þar sést að enginn steinn er í honum. Taylor hlaut níu verðlaun á hátíðinni og fór mikinn þetta kvöld. Hún skemmti sér konunglega allt kvöldið, dansandi, stappandi og veifandi höndum í allar áttir. Það er kannski ekki skrýtið að demanturinn hafi dottið af. Lestu stjörnufréttir Evu Ruzu á K100.is.