— Morgunblaðið/Árni Sæberg
mso-fareast-font-family:"Times New Roman";color:#333333">Kraftur er í uppbyggingu sem nú á sér stað í Hamranesi í Hafnarfirði. Í fullbyggðu hverfi verða 1.900 íbúðir og stór hluti þeirra er nú ýmist fullbúinn og fólk flutt inn eða hús á byggingarstigi

Kraftur er í uppbyggingu sem nú á sér stað í Hamranesi í Hafnarfirði. Í fullbyggðu hverfi verða 1.900 íbúðir og stór hluti þeirra er nú ýmist fullbúinn og fólk flutt inn eða hús á byggingarstigi. Gert er ráð fyrir að um 5.000 íbúar verði í þessu hverfi í framtíðinni. Hverfið er í mikilli nálægð við náttúruna og þessa dagana fá haustlitirnir að njóta sín til fulls. Möstur og háspennulínur næst byggðinni í Hamranesi munu sum standa áfram en aðrar línur verða lagðar í jörð þegar fram líða stundir.