Eivør Pálsdóttir heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu næsta sunnudag, 8. október, kl. 20. Þegar hún stígur á svið „geta áhorfendur búist við stórkostlegri tónlistarupplifun þar sem Eivør flytur alla sína helstu smelli studd af stjörnusveit tónlistarmanna á heimsmælikvarða“, segir í tilkynningu

Eivør Pálsdóttir heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu næsta sunnudag, 8. október, kl. 20. Þegar hún stígur á svið „geta áhorfendur búist við stórkostlegri tónlistarupplifun þar sem Eivør flytur alla sína helstu smelli studd af stjörnusveit tónlistarmanna á heimsmælikvarða“, segir í tilkynningu. „Glæsilegur ferill Eivørar samanstendur meðal annars af ótal plötum, smáskífum, virtum viðurkenningum og verðlaunum.“ Tónlistarkonan JFDR hitar upp fyrir tónleikana.