ÍBV er komið áfram í 32-liða úrslit Evrópubikars kvenna í handbolta, þrátt fyrir 26:27-tap fyrir Colégio de Gaia frá Portúgal í seinni leik liðanna í 64-liða úrslitum á laugardag. Eyjakonur unnu fyrri leikinn á föstudag, 27:23, og einvígið samanlagt 53:50
ÍBV er komið áfram í 32-liða úrslit Evrópubikars kvenna í handbolta, þrátt fyrir 26:27-tap fyrir Colégio de Gaia frá Portúgal í seinni leik liðanna í 64-liða úrslitum á laugardag. Eyjakonur unnu fyrri leikinn á föstudag, 27:23, og einvígið samanlagt 53:50. Voru báðir leikirnir leiknir ytra.
Sara Dröfn Richardsdóttir var markahæst á laugardag með sex mörk.
Valur er úr leik í Evrópudeildinni eftir 14:30-tap á útivelli gegn Dunarea Braila frá Rúmeníu. Rúmenska liðið vann fyrri leikinn 30:29 og einvígið 60:43.