Saoirse Ronan leikur aðalhlutverkið í Foe.
Saoirse Ronan leikur aðalhlutverkið í Foe. — AFP/Robyn Beck
Framtíð Saoirse Ronan er stödd í framtíðinni í nýjustu kvikmynd sinni, Foe, ásamt öðrum írskum leikara, Paul Mescal. Þau leika par sem hokrar á afskekktu býli í Bandaríkjunum þegar jörðin er komin að fótum fram

Framtíð Saoirse Ronan er stödd í framtíðinni í nýjustu kvikmynd sinni, Foe, ásamt öðrum írskum leikara, Paul Mescal. Þau leika par sem hokrar á afskekktu býli í Bandaríkjunum þegar jörðin er komin að fótum fram. Birtist þá ekki dularfullur ókunnugur maður sem segir stjórnvöld hafa áform um að þróa búsetu í geimnum. Karakter Mescals er fenginn til að vinna að þeim málum en þarf fyrir vikið að skilja karakter Ronan eftir heima. Okkur er ráðlagt að halda okkur fast enda ekki allt sem sýnist. Garth Davis leikstýrir.