Landsréttur hefur þyngt dóm yfir Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni nuddara fyrir að hafa nauðgað konu á nuddstofu sinni árið 2012, en hann hlaut 12 mánaða hegningarauka í héraðsdómi í janúar á síðasta ári
Landsréttur hefur þyngt dóm yfir Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni nuddara fyrir að hafa nauðgað konu á nuddstofu sinni árið 2012, en hann hlaut 12 mánaða hegningarauka í héraðsdómi í janúar á síðasta ári. Var dómurinn í gær þyngdur um sex mánuði, eða úr 12 mánuðum í 18 mánaða fangelsi.
Dómurinn í héraði var annar dómurinn sem Jóhannes hlaut vegna brota sem þessara, en áður hafði hann hlotið sex ára dóm á síðasta ári.