Icelandair flutti 416 þúsund farþega í september, 8% fleiri en í sama mánuði í fyrra. Sætanýting var 82,7%. Félagið hefur flutt um 3,4 milljónir farþega það sem af er ári, sem er 19% aukning á milli ára.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði í tilkynningu sem birt var með flutningatölum félagsins í gær að þriðji ársfjórðungur væri sá stærsti í sögu Icelandair í fjölda flugferða.
Bréf félagsins tóku einnig kipp í Kauphöllinni í gær og hækkuðu um 5,4% í rúmlega 600 milljóna króna viðskiptum. Gengi félagsins hefur lækkað töluvert frá því í lok júlí, eða um 36%.