„Síðasta ár markaðist af baráttu fyrir því einfalda og sjálfsagða: Að hafa tækifæri til þátttöku í samfélaginu, njóta mannvirðingar til jafns við önnur og afkomuöryggis er viðvarandi verkefni ÖBÍ-réttindasamtakanna.“
Þetta sagði Þuríður Harpa Sigurðardóttir er hún ávarpaði aðalfund Öryrkjabandalags Íslands í gær. Hún hefur gegnt embætti formanns ÖBÍ undanfarin sex ár en lét af störfum í gær.
Þuríður sagði tækifærin til að hafa áhrif til betri vegar feikimörg og að mikilvægt væri að grípa þau. Hún sagði að ekki aðeins fatlaðir heldur allir í samfélaginu mundu njóta þessa.
„Fatlað fólk verður fyrir misrétti og mismunun á hverjum degi og við verðum að setja þessi tvö hugtök á oddinn og knýja á um lögfestingu SRFF, þannig náum við fram sjálfsögðum réttindum,“ sagði Þuríður Harpa.