Morton í hlutverki prestsins.
Morton í hlutverki prestsins. — Paramount+
Brennur Samantha Morton hefur átt marga góða spretti í bresku sjónvarpi. Næst mun hún birtast okkur í gervi prests í uppdiktuðum bæ, þar sem ekki er allt sem sýnist. Forveri hennar í starfi hefur fyrirfarið sér og samfélagið aldrei jafnað sig eftir…

Brennur Samantha Morton hefur átt marga góða spretti í bresku sjónvarpi. Næst mun hún birtast okkur í gervi prests í uppdiktuðum bæ, þar sem ekki er allt sem sýnist. Forveri hennar í starfi hefur fyrirfarið sér og samfélagið aldrei jafnað sig eftir að tvær ungar stúlkur hurfu sporlaust þrjátíu árum fyrr. Jack, eins og presturinn heitir, þarf að finna út úr því hvað í raun og veru hefur gerst um leið og hún glímir við drauga úr eigin fortíð. Þá er hún fráskilin með dóttur á táningsaldri. Til að bæta gráu ofan á svart mun téður bær hafa verið þekktur fyrir nornabrennur á miðöldum. The Burning Girls heitir myndaflokkurinn og hefur göngu sína á Paramount+ 19. þ.m.