Minningar Geddy gamli Lee, bassaleikari og söngvari proggkónganna Rush, sendir frá sér endurminningar sínar í næsta mánuði, My Effin’ Life eða Helv. lífshlaup mitt. Kappinn lætur ekki þar við sitja heldur leggur land undir fót og mun lesa upp úr bókinni og spjalla um hana og svara spurningum á sviði
Minningar Geddy gamli Lee, bassaleikari og söngvari proggkónganna Rush, sendir frá sér endurminningar sínar í næsta mánuði, My Effin’ Life eða Helv. lífshlaup mitt. Kappinn lætur ekki þar við sitja heldur leggur land undir fót og mun lesa upp úr bókinni og spjalla um hana og svara spurningum á sviði. Lee hefur ferðalagið í New York 13. nóvember og ferðast svo borg úr borg í Bandaríkjunum og Bretlandi.