Þrenna Stefán Teitur Þórðarson skoraði þrjú falleg mörk í gær.
Þrenna Stefán Teitur Þórðarson skoraði þrjú falleg mörk í gær. — Morgunblaðið/Eggert
Stefán Teitur Þórðarson átti sannkallaðan stórleik með Silkeborg gegn Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Hann gerði nánast út um leikinn með því að skora þrennu á átta mínútum en staðan var orðin 3:0 eftir 23 mínútna leik og Silkeborg vann 5:0

Stefán Teitur Þórðarson átti sannkallaðan stórleik með Silkeborg gegn Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Hann gerði nánast út um leikinn með því að skora þrennu á átta mínútum en staðan var orðin 3:0 eftir 23 mínútna leik og Silkeborg vann 5:0. Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður hjá Lyngby og lék síðasta hálftímann, í sínum öðrum leik með félaginu. Silkeborg komst á toppinn á betri markatölu en FCK.