Julia Ormond í First Knight.
Julia Ormond í First Knight.
Breska leikkonan Julia Ormond hefur höfðað mál gegn Harvey Weinstein sem hún sakar um að hafi beitt sig kynferðislegu ofbeldi árið 1995. Weinstein afplánar nú 23 ára fangelsisdóm fyrir nauðgun. Leikkonan sem lék meðal annars í kvikmyndinni First…

Breska leikkonan Julia Ormond hefur höfðað mál gegn Harvey Weinstein sem hún sakar um að hafi beitt sig kynferðislegu ofbeldi árið 1995. Weinstein afplánar nú 23 ára fangelsisdóm fyrir nauðgun. Leikkonan sem lék meðal annars í kvikmyndinni First Knight hefur einnig farið fram á skaðabætur frá kvikmyndafyrirtækjunum Disney og Miramax auk fyrrverandi umboðsskrifstofu hennar sem hún segir að hafi vanrækt skyldur sínar. Ormond segir að ferill hennar hafi aldrei náð sér á strik eftir árás Weinsteins. Í málshöfðuninni kemur fram að á hátindi ferilsins hafi hún eftir viðskiptakvöldverð farið með Weinstein í íbúð sem framleiðslufyrirtækið Miramax útvegaði, þar sem hann afklæddi sig og neyddi hana til munnmaka. „Ef Miramax eða Disney hefðu sinnt sínum skyldum hefði þetta ekki gerst,“ segir í kærunni.