Dúettinn Þau heldur útgáfutónleika í Bæjarbíó annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20 til að fagna útgáfu annarrar plötu sinnar sem nefnist Þau taka Norðurland. Dúettinn skipa Rakel Björk Björnsdóttir, söng- og leikkona, og Garðar Borgþórsson, gítar- og slagverksleikari. Á tónleikum kvöldsins munu þau „flytja glæný lög þar sem ljóð skálda frá Norðurlandi og Vestfjörðum lifna við. Orðsnilld Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, Huldu, Jakobínu Sigurðardóttur, Ólafar frá Hlöðum, Steins Steinarrs og fleiri skálda öðlast nýtt líf í vönduðum tónlistarflutningi með rokk-, popp-, djass- og blúsívafi,“ eins og segir í tilkynningu. Miðar fást á tix.is.