Norður
♠ ÁG86
♥ D10832
♦ K
♣ K75
Vestur
♠ –
♥ ÁKG97654
♦ ÁDG96
♣ –
Austur
♠ 1097543
♥ –
♦ 1052
♣ D1084
Suður
♠ KD2
♥ –
♦ 8743
♣ ÁG9632
Suður spilar 1G.
„Ég tek þetta til mín.“ Geltinum var brugðið. Hann hafði fengið tölvupóst með spilinu að ofan, sem hófst á svofelldum orðum: „Þau sem svona spila ættu að snúa sér að einhverju öðru.“
„Greinilega er hér verið að ávarpa okkur svínin. Ekki eru það þau mennirnir eða þau fuglarnir, sem verið er að tala til. Ónei. Þau svínin skal það vera. Þessu skeyti er beint til mín og minna kynbræðra – og -systra, auðvitað líka.“
Þetta er óþarfa viðkvæmni hjá Geltinum. Spilið er frá ítölsku deildakeppninni og það sem sat í vestur átti svolítið bágt. Það horfði á norður opna á 1♥ og suður svara á grandi. Kannski hefði verið skynsamlegt að segja bara 4♥ og vona það besta, en þessu fyrirbæri þótti pass betri kostur og beit svo höfuðið af skömminni með því að spila út tíguldrottningu. Ellefu slagir. – „Raunar ekki mjög svínslegt framferði, þegar ég hugsa út í það.“