— AFP/Menahem Kahana
Brynvarðir ísraelskir liðsflutningavagnar við landamæri Gasasvæðisins í gær, en Ísraelsmenn boða landhernað til að uppræta hreyfingu Hamas á Gasa eftir skelfilegar hryðjuverkaárásir hennar á ísraelska borgara um fyrri helgi

Brynvarðir ísraelskir liðsflutningavagnar við landamæri Gasasvæðisins í gær, en Ísraelsmenn boða landhernað til að uppræta hreyfingu Hamas á Gasa eftir skelfilegar hryðjuverkaárásir hennar á ísraelska borgara um fyrri helgi. Það kann að reynast torsótt og mannskæð barátta hús úr húsi, en talið er að þegar sé um milljón íbúa á vergangi þar eftir loftárásir á bækistöðvar Hamas í Gasaborg.