Kjölfar skýra orðabækur svo: far eftir skip á yfirborði vatns og rák í vatni eftir bát sem skríður hratt fram. Sem sagt eftir skip eða bát

Kjölfar skýra orðabækur svo: far eftir skip á yfirborði vatns og rák í vatni eftir bát sem skríður hratt fram. Sem sagt eftir skip eða bát. Kjölfarið er ekki „á skipinu“ heldur myndast eftir það. E-ð sem kemur á eftir e-u öðru og er afleiðing þess: „Margir dómar féllu í kjölfar bankahrunsins“, ekki „kjölfarið á bankahruninu“.