Stríð Utanríkisráðherra Írans á fundi nýlega með fulltrúa Hamas.
Stríð Utanríkisráðherra Írans á fundi nýlega með fulltrúa Hamas. — AFP/Íranska utanríkisráðuneytið
Stjórnvöld Írans hafa sent Ísraelum skilaboð um að þau vilji ekki að átök Ísraels og Hamas stigmagnist frekar. Þau muni aftur á móti þurfa að skerast í leikinn ef Ísrael heldur aðgerðum sínum áfram á Gasasvæðinu

Stjórnvöld Írans hafa sent Ísraelum skilaboð um að þau vilji ekki að átök Ísraels og Hamas stigmagnist frekar. Þau muni aftur á móti þurfa að skerast í leikinn ef Ísrael heldur aðgerðum sínum áfram á Gasasvæðinu. Þetta hefur bandaríski miðillinn Axios eftir tveimur heimildarmönnum innan utanríkisþjónustunnar sem kunnugir eru málinu. Að sögn þeirra átti íranski utanríkisráðherrann, Hossein Amir-Abdollahian, fund með erindreka Sameinuðu þjóðanna í Mið-Austurlöndum, Tor Wennesland, í Beirút á laugardaginn.

Í umfjöllun miðilsins er Wennesland sagður hafa hvatt Amir-Abdollahian til að aðstoða við að koma í veg fyrir að átökin breiðist frekar út um heimshlutann.

Mun ráðherrann hafa svarað því til að Íran vilji ekki að styrjöldin breytist í stríð í heimshlutanum og að Íran vilji hjálpa til við að losa þá borgara úr haldi sem vígamenn Hamas tóku sem gísla fyrir viku. En hann bætti við að Íran hefði sín takmörk. Ef hernaðaraðgerð Ísraelshers héldi áfram – og sérstaklega ef Ísrael stendur við loforð sitt um innrás fótgönguliða í Gasasvæðið – þá muni Íran þurfa að bregðast við. Hótunin, sem var borin áfram til Ísraels í gegnum boðleiðir Sameinuðu þjóðanna, felur í sér yfirvofandi hættu á stríði í heimshlutanum. Kemur hún í kjölfar fyrri viðvarana íranska utanríkisráðherrans.

Hann mun einnig hafa tjáð erindrekanum í Beirút að líbönsku hryðjuverkasamtökin Hisbollah, sem njóta stuðnings klerkastjórnarinnar í Íran, hefðu lagt á ráðin og undirbúið aðgerðir, fari svo að Ísrael linni ekki árásum sínum á Gasa.

„Fingur þeirra er þegar á gikknum, reiðubúinn að hleypa af,“ sagði íranski ráðherrann.