Gyðingaandúð Mótmælendur í Pakistan brenndu ísraelska fána.
Gyðingaandúð Mótmælendur í Pakistan brenndu ísraelska fána. — AFP/Banaras Khan
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Hermann Nökkvi Gunnarsson hng@mbl.is Dr. Sharon Nazarian, stjórnarmaður Anti-Defamation League, alþjóðlegum mannréttindasamtaka sem berjast gegn gyðingaandúð, segir í samtali við Morgunblaðið að þeir sem fordæma ekki hryðjuverkasamtökin Hamas, eins og formaður Félagsins Íslands-Palestínu (FÍP), séu augljóslega með vafasamar skoðanir um gyðinga. Segir hún gyðingaandúð vera meira á yfirborðinu um heim allan í kjölfar hryðjuverka Hamas-samtakanna 7. október þar sem á annað þúsund Ísraelar voru myrtir.

Hermann Nökkvi Gunnarsson

hng@mbl.is

Dr. Sharon Nazarian, stjórnarmaður Anti-Defamation League, alþjóðlegum mannréttindasamtaka sem berjast gegn gyðingaandúð, segir í samtali við Morgunblaðið að þeir sem fordæma ekki hryðjuverkasamtökin Hamas, eins og formaður Félagsins Íslands-Palestínu (FÍP), séu augljóslega með vafasamar skoðanir um gyðinga. Segir hún gyðingaandúð vera meira á yfirborðinu um heim allan í kjölfar hryðjuverka Hamas-samtakanna 7. október þar sem á annað þúsund Ísraelar voru myrtir.

„Formaðurinn þeirra [FÍP] hitti leiðtoga Hamas árið 2010. Og árið 2014, í Gasaátökum, sagði hann við fjölmiðla að hann vonaðist eftir sigri hryðjuverkasamtakanna Hamas og íslamsks jíhads,“ segir dr. Sharon. Morgunblaðið hafði samband við Hjálmtý Heiðdal, núverandi formann FÍP, og kvaðst hann aðspurður neita að fordæma Hamas. Sagðist hann þó fordæma öll morð.

Sharon segir ótrúlegt að fólk geti sumt hvert ekki fordæmt Hamas.

„Það segir mikið um þig ef þú getur ekki fordæmt hryðjuverkasamtök sem fremja svona hryðjuverk gegn saklausu fólki og kúga sína eigin borgara. Þau slátruðu yfir þúsund manns, hvers konar mannréttindi eru það?“ spyr Sharon og bætir við:

„Ég veit að Íslendingum er mjög annt mannréttindi og þá sem minna mega sín. Þannig styðja sumir Palestínu. En það sem vekur áhyggjur, og við sáum það í Reykjavík á mótmælum á dögunum, er hvað fólk er tilbúið að réttlæta eða styðja við Hamas. Þetta eru hryðjuverkasamtök og það eru mistök að halda að Hamas berjist fyrir auknum réttindum Palestínumanna. Það skiptir máli á Íslandi að fólk læri um það hvernig Hamas kúgar sína eigin íbúa á Gasasvæðinu. Það er í stefnu þeirra að myrða gyðinga.“

Sjálf styður Sharon tveggja ríkja lausn Ísraels og Palestínu og segir mikilvægt að kalla ekki þá sem hafi samúð með Palestínu gyðingahatara. Miklu máli skipti að fræða fólk um söguna og staðreyndirnar. Hún segir fullkomlega eðlilegt að gagnrýna aðgerðir stjórnvalda Ísraels eins og stjórnvöld annarra ríkja. Nefnir hún sem dæmi landnemabyggðir Ísraels, sem hún hefur sjálf gagnrýnt.

„Þú ert hins vegar farinn yfir strikið þegar þú talar fyrir því að Ísrael eigi ekki að fá að vera til, efast um lögmæti eina gyðingaríkisins í heiminum, efast um rétt gyðinga til að stýra eigin landi og samþykkir öfgahugmyndafræði Hamas um algjöra útrýmingu Ísraels og gyðinga. Það er gyðingaandúð að halda því fram Ísrael og gyðingar eigi ekki að fá að verja þjóðina sína í kjölfar þjóðarmorðsárása. Allar aðrar þjóðir mega verja sig í kjölfar svona árásar. Af hverju mega gyðingar þá ekki verja sig?“ spyr Sharon.

Hún segir mikilvægt að fólk átti sig á því að hóparnir sem styðji við Hamas og hati gyðinga séu einnig í beinni mótstöðu við grunngildi þeirra þjóða sem standa fyrir rétti til lífs, mannréttindi fyrir minnihlutahópa og lýðræði.

„Skoðanir þessa fólks eru í mótstöðu við okkar dýrmætustu gildi og það er nauðsynlegt að fólk skilji það. Þú sérð fólk í Reykjavík flagga Palestínufánanum og fagna. Þau munu misnota allt sem Ísland hefur upp á að bjóða [lýðræði og frelsi], til að rífa niður grunngildi Íslands. Þessu þurfum við öll að hafa áhyggjur af.“