Ragna Sara Jónsdóttir
Ragna Sara Jónsdóttir
Vörur hönnunarfyrirtækisins FÓLK Reykjavík hafa vakið heimsathygli í virtum tímaritum. Ragna Sara Jónsdóttir er listrænn stjórnandi en hún stofnaði reksturinn árið 2017 og vildi stuðla að sjálfbærni í hönnun og framleiðslu heimilis- og lífstílsvara

Vörur hönnunarfyrirtækisins FÓLK Reykjavík hafa vakið heimsathygli í virtum tímaritum. Ragna Sara Jónsdóttir er listrænn stjórnandi en hún stofnaði reksturinn árið 2017 og vildi stuðla að sjálfbærni í hönnun og framleiðslu heimilis- og lífstílsvara.

Fyrir skemmstu opnaði fyrirtækið sýningarsal í Kaupmannahöfn, þar sem skrifstofur þess eru nú, og stefnir fyrirtækið í sókn inn á Evrópumarkað. Stefnt er að því að fjölga endursöluaðilum, einkum í Evrópu en einnig í Bandaríkjunum og í Asíu, samhliða breikkun vörulína. Nú starfa þar fimm manns og er nýr stjórnarformaður Birna Einarsdóttir, fyrrverandi bankastjóri. » 11