30 ára Anna Bára er Akureyringur en býr í Reykjavík. Hún er með BS-gráðu í sálfræði frá HÍ, MPH-gráðu í lýðheilsuvísindum og er doktorsnemi í því fagi við HÍ. Anna Bára starfar sem verkefnisstjóri Covidment í Miðstöð í lýðheilsuvísindum við HÍ. Áhugamál hennar eru ferðalög, útivist og góður matur.
Fjölskylda Sambýlismaður Önnu Báru er Páll Jónsson, f. 1994, sölu- og markaðsstjóri hjá Norðanfiski. Dóttir þeirra er Alba Malen, f. 2022. Foreldrar Önnu Báru eru hjónin Guðný Fjóla Árnmarsdóttir, f. 1964, viðurkenndur bókari, og Unnar Eiríksson, f. 1960, fv. aðstoðarskólastjóri við Þelamerkurskóla. Þau eru búsett í Reykjavík.