Norður
♠ D9
♥ KDG95
♦ D98
♣ Á104
Vestur
♠ 73
♥ 10872
♦ G5
♣ D6532
Austur
♠ Á52
♥ Á63
♦ ÁK102
♣ G87
Suður
♠ KG10864
♥ 4
♦ 7643
♣ K9
Suður spilar 2♠.
Munu tölvurnar taka völdin? Haraldur háfleygi hallast að því, eins og Elon Musk, en Gölturinn er ekki eins viss: „Gervigreindin ræður ekki við öll vandamál,“ segir hann og telur að það gildi sérstaklega um vörnina. „Þá reynir á ekta greind.“
Suður spilar 2♠ eftir opnun norðurs á 1♥ og innákomu austurs á grandi. Útspilið er tígulgosi og sagnhafi lætur drottninguna.
„Það þarf bara meðalgreind til að finna vörnina á opnu borði,“ segir Gölturinn og fer hratt yfir sögu: Austur tekur tvo slagi á tígul, spilar svo ♦2 og lætur makker trompa. Vestur spilar síðan spaða, austur aftrompar blindan með ás og öðrum spaða og fær sjötta slaginn á tígul í fyllingu tímans. – Vandinn er að fá vestur til að trompa út þegar hann hefur tekið tígulstunguna. „Tölva gæti klikkað á því, en snjall göltur í austur spilar tígulTÍU í slag tvö og heldur makker þannig upplýstum.“