Herflugvélar Fjórar F-16-flugvélar verða notaðar í loftrýmisgæslu.
Herflugvélar Fjórar F-16-flugvélar verða notaðar í loftrýmisgæslu. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Von er á bandarískri flugsveit til landsins í dag til að sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins, NATO, við Ísland. Flugsveitin kemur til landsins frá Þýskalandi með fjórar F-16-herþotur og 120 liðsmenn

Von er á bandarískri flugsveit til landsins í dag til að sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins, NATO, við Ísland. Flugsveitin kemur til landsins frá Þýskalandi með fjórar F-16-herþotur og 120 liðsmenn. Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki um miðjan nóvembermánuð.

Sveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum stjórnstöðva NATO í Udem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Með fyrirvara um veður er gert ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 21. til 27. október.

Flugsveitin kemur til með að hafa aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja NATO sem sinna kafbátaeftirliti úti fyrir ströndum Íslands. Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár.