Fjórir leikir fóru fram í þriðju umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta í gærkvöldi og eru sjö lið af tólf jöfn með fjögur stig. Álftanes vann sinn annan sigur í röð er liðið heimsótti Breiðablik og fagnaði 91:71-útisigri

Fjórir leikir fóru fram í þriðju umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta í gærkvöldi og eru sjö lið af tólf jöfn með fjögur stig. Álftanes vann sinn annan sigur í röð er liðið heimsótti Breiðablik og fagnaði 91:71-útisigri. Keflavík vann nauman 87:86-heimasigur á Val og varð fyrsta liðið til að vinna Valsmenn. Þór frá Þorlákshöfn vann sinn annan sigur í röð er liðið fagnaði 84:81-heimasigri á Haukum og Stjarnan vann Hamar, 90:80, á útivelli. » 26