Tíu Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tíu gegn stórliði Kiel.
Tíu Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tíu gegn stórliði Kiel. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þrír Íslendingar voru sérlega áberandi í Meistaradeild Evrópu í handbolta í gærkvöldi og léku gríðarlega vel. Sigvaldi Björn Guðjónsson gerði sér lítið fyrir og skoraði tíu mörk fyrir Noregsmeistara Kolstad í 34:30-heimasigri á Þýskalandsmeisturum Kiel

Þrír Íslendingar voru sérlega áberandi í Meistaradeild Evrópu í handbolta í gærkvöldi og léku gríðarlega vel. Sigvaldi Björn Guðjónsson gerði sér lítið fyrir og skoraði tíu mörk fyrir Noregsmeistara Kolstad í 34:30-heimasigri á Þýskalandsmeisturum Kiel. Þá skoraði Ómar Ingi Magnússon níu mörk fyrir Evrópumeistara Magdeburgar í 37:33-heimasigri á Porto. Janus Daði Smárason átti einnig mjög góðan leik og skoraði sjö mörk.