Hljómsveitirnar Dúkkulísurnar og Kolrassa krókríðandi ásamt Cell7 og Salóme Katrínu halda saman tónleika í Bæjarbíói annað kvöld, laugardagskvöldið 21. október, kl. 20. „Hljómsveitirnar Dúkkulísurnar og Kolrössu krókríðandi þarf vart að kynna þar sem þær eru með þekktustu kvennaböndum Íslands og er þetta í fyrsta sinn sem þær leiða saman krafta sína og halda tónleika saman,“ segir í tilkynningu. „Cell7 hefur verið í fremsta flokki í hipphopp-senunni á Íslandi í áraraðir og Salóme Katrín kemur sterkt inn sem einn af efnilegustu lagahöfundum og flytjendum síðustu ára.“