— Morgunblaðið/Eggert
Strandgæsluskipið USCGC Healy kom í gærmorgun til hafnar í Reykjavík en um er að ræða stærsta ísbrjót Bandaríkjanna. Heimahöfn skipsins er í Seattle í Washington-ríki og var það tekið í þjónustu strandgæslunnar í nóvember árið 1999

Strandgæsluskipið USCGC Healy kom í gærmorgun til hafnar í Reykjavík en um er að ræða stærsta ísbrjót Bandaríkjanna. Heimahöfn skipsins er í Seattle í Washington-ríki og var það tekið í þjónustu strandgæslunnar í nóvember árið 1999. Síðan þá hefur Healy fjórum sinnum brotið sér leið í átt að norðurpólnum, fyrst árið 2001 en síðast í fyrravetur.

Ísbrjóturinn Healy er 128 metra langur og sérstaklega hannaður til að stunda fjölbreyttar rannsóknir. Til þess má m.a. finna fimm fullkomnar rannsóknarstofur um borð og vinnurými fyrir allt að 50 vísindamenn og aðra rannsakendur. Þá eru einnig um borð tvær þyrlur af gerðinni HH-65B Dolphin. Á stöðugri siglingu getur Healy brotið sér leið í gegnum 1,4 metra þykkan ís en allt að 3 metra þykkan ís með látum. khj@mbl.is