Heim Andri Rúnar er kominn í raðir Vestra á heimaslóðum.
Heim Andri Rúnar er kominn í raðir Vestra á heimaslóðum. — Morgunblaðið/Óttar
Framherjinn Andri Rúnar Bjarnason er genginn í raðir Vestra og mun leika með liðinu á næstu leiktíð. Vestri tryggði sér sæti í Bestu deildinni í fótbolta á nýliðinni leiktíð með sigri í umspilinu og spilar því í efstu deild að ári

Framherjinn Andri Rúnar Bjarnason er genginn í raðir Vestra og mun leika með liðinu á næstu leiktíð. Vestri tryggði sér sæti í Bestu deildinni í fótbolta á nýliðinni leiktíð með sigri í umspilinu og spilar því í efstu deild að ári. Andri er frá Bolungarvík og heldur því á heimaslóðir. Lék hann með meistaraflokki BÍ/Bolungarvíkur frá 2005 til 2014. Hann hefur einnig leikið með Víkingi Reykjavík, Grindavík og ÍBV hér á landi.