Myndlist Viðfangsefnið er íslensk náttúra í sínum margbreytileika.
Myndlist Viðfangsefnið er íslensk náttúra í sínum margbreytileika.
Myndlistarkonan Sigga Hanna opnar sýningu á klippimyndum og textílverkum í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5 í dag, laugardaginn 21. október. Sýningin, sem ber titilinn Ekki er allt sem sýnist, stendur til 10

Myndlistarkonan Sigga Hanna opnar sýningu á klippimyndum og textílverkum í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5 í dag, laugardaginn 21. október. Sýningin, sem ber titilinn Ekki er allt sem sýnist, stendur til 10. nóvember og er opin á verslunartíma. „Viðfangsefni flestra verkanna er íslensk náttúra í sínum margbreytileika. Sigga Hanna hefur fengist við margs konar myndgerð um langt árabil en hún stundaði nám í Myndlista- og handíðaskólanum hjá Kurt Zier eftir miðja síðustu öld. Sigga Hanna verður 80 ára á Kvennafrídaginn 24. okt. nk.,“ segir í tilkynningu frá Listhúsi Ófeigs.