Dee Snider er skoðanaglaður.
Dee Snider er skoðanaglaður. — AFP/Michael Tran
Stjórnmál Dee Snider, söngvari bandaríska glysmálmbandsins Twisted Sister, er frægur fyrir að vera með munninn fyrir neðan nefið og hefur gegnum tíðina haft ríka skoðun á ýmsum deilumálum í samfélaginu

Stjórnmál Dee Snider, söngvari bandaríska glysmálmbandsins Twisted Sister, er frægur fyrir að vera með munninn fyrir neðan nefið og hefur gegnum tíðina haft ríka skoðun á ýmsum deilumálum í samfélaginu. Í viðtali í útvarpsþættinum Jim Kerr Rock & Roll Morning Show kveðst hann þó alls ekki á leið á þing. Það sé ömurlegt starf og hann hafi það miklu betra á ströndinni, hálfpartinn sestur í helgan stein.