Fyrirliði Hans Viktor var fyrirliði Fjölnis áður en hann samdi við KA.
Fyrirliði Hans Viktor var fyrirliði Fjölnis áður en hann samdi við KA. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Knattspyrnudeild KA hefur gengið frá tveggja ára samningi við varnarmanninn Hans Viktor Guðmundsson. Hann kemur til KA frá Fjölni þar sem hann hefur leikið allan sinn feril. Hans Viktor, sem er 27 ára, var fyrirliði Fjölnis

Knattspyrnudeild KA hefur gengið frá tveggja ára samningi við varnarmanninn Hans Viktor Guðmundsson. Hann kemur til KA frá Fjölni þar sem hann hefur leikið allan sinn feril. Hans Viktor, sem er 27 ára, var fyrirliði Fjölnis.

Hann lék 81 leik með liðinu í efstu deild og skoraði í þeim fimm mörk. Þá hefur hann skorað 16 mörk í 73 leikjum í 1. deildinni. Hann lék 24 leiki með Fjölni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim fjögur mörk.