1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6 5. Bd3 Dc7 6. Be3 Rf6 7. 0-0 d5 8. Rc3 e5 9. Rxd5 Rxd5 10. exd5 exd4 11. Bxd4 Rd7 12. He1+ Kd8 13. Df3 Rc5
Staðan kom upp í fyrri hluta Kvikudeildar, efstu deildar Íslandsmóts skákfélaga, sem fór fram dagana 12.-15. október sl. í Rimaskóla. Nökkvi Sverrisson (2.056) hafði hvítt gegn Björgvini Víglundssyni (2.172). 14. Bf6+! og svartur gafst upp enda taflið gjörtapað, t.d. eftir 14. … gxf6 15. Dxf6+ Be7 16. Dxh8+ Kd7 17. Bf5+. í dag kl. 14.00 hefjast úrslitin í mótaröð Bankans Bistro en eftir fimm sterk mót varð ljóst hvaða 12 keppendur tryggðu sér þátttökurétt í úrslitakeppninni. Sýnt verður frá öllu mótinu í beinni útsendingu og verða skákskýringar í höndum CAD-bræðra og Harðar Magnússonar íþróttalýsanda. Sjá nánari upplýsingar um þetta skemmtilega mót á skak.is.