Meistaradeild Glódís Perla verður í snúnum riðli í Meistaradeildinni.
Meistaradeild Glódís Perla verður í snúnum riðli í Meistaradeildinni. — Morgunblaðið/Hákon
Glódís Perla Viggósdóttir og liðsfélagar hennar í Bayern München drógust í C-riðil með franska stórliðinu París SG, Ítalíumeisturum Roma og Hollandsmeisturum Ajax þegar dregið var í riðla í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gær

Glódís Perla Viggósdóttir og liðsfélagar hennar í Bayern München drógust í C-riðil með franska stórliðinu París SG, Ítalíumeisturum Roma og Hollandsmeisturum Ajax þegar dregið var í riðla í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gær. Guðrún Arnardóttir dróst í A-riðil með liði sínu Rosengård, ásamt Evrópumeisturum Barcelona. Í A-riðlinum eru einnig portúgölsku meistararnir í Benfica, sem landsliðskonan Svava Rós Guðmundsdóttir leikur með. Nánar á mbl.is/sport.