— Ljósmynd/Mummi Lú
Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpsstjarna á K100, og Stefán Jakobsson, söngvari hljómsveitarinnar Dimmu, giftu sig í Mývatnssveit þann 23. september síðastliðinn. Stefán samdi fallegt lag fyrir Kristínu sem hann flutti á brúðkaupsdaginn og áttu…

Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpsstjarna á K100, og Stefán Jakobsson, söngvari hljómsveitarinnar Dimmu, giftu sig í Mývatnssveit þann 23. september síðastliðinn. Stefán samdi fallegt lag fyrir Kristínu sem hann flutti á brúðkaupsdaginn og áttu flestir gestirnir mjög erfitt með að fella ekki tár. Kristín Sif deildi laginu og fallegu myndbandi á Instagram. „Það hefur enginn náð að koma mér svona á óvart áður. Er algjörlega orðlaus,“ skrifar Kristín við færsluna, algjörlega í skýjunum með daginn. Lestu meira á K100.is.