line-height:150%">Það ætlar ekki að linna jarðgöngum hér á landi, á endanum getum við keyrt inni hvert sem við ætlum. Því er þörf að árétta að göng verða til ganga í eignarfalli en göngur , allar göngur og ekki aðeins smalamennska, verða til…

Það ætlar ekki að linna jarðgöngum hér á landi, á endanum getum við keyrt inni hvert sem við ætlum. Því er þörf að árétta að göng verða til ganga í eignarfalli en göngur, allar göngur og ekki aðeins smalamennska, verða til gangna. Við skulum því reyna að hætta „jarðgangnagerð“, nógur er líka kostnaðurinn af hinni.