Ljósið og körfuknattleiksdeild Álftaness hafa framlengt samstarf sitt sem hófst á síðasta keppnistímabili. Markmið samstarfsins er að auka vitund um starfsemi samtakanna og fjölga svokölluðum Ljósavinum, segir í tilkynningu.
Af því tilefni er boðað til góðgerðarleiks næstkomandi fimmtudag, þegar liðið tekur á móti Njarðvíkingum í Forsetahöllinni. Aðgangseyrir rennur óskiptur til samtakanna og munu leikmenn og forsvarsmenn deildarinnar afhenda ávísun að andvirði ein milljón króna, líkt og gert var á síðasta keppnistímabili.
Hægt er að gerast styrktaraðili Ljóssins eða leggja inn á styrktarreikning: 0130-26-410420, kt. 590406-0740.