Vilji maður vita eitthvað getur maður einfaldlega spurt um það. Svo er líka hægt að bera upp spurningu, bera hana fram, leggja hana fram, koma með hana, leggja hana fyrir e-n eða beina henni til…
Vilji maður vita eitthvað getur maður einfaldlega spurt um það. Svo er líka hægt að bera upp spurningu, bera hana fram, leggja hana fram, koma með hana, leggja hana fyrir e-n eða beina henni til hans. Sumir velta upp spurningu, án þess að spyrja orðabækur. Og þeir sem velta fram spurningu verða að sjá um sig sjálfir.