Keflavík er með fullt hús stiga á toppi úrvalsdeildar kvenna í körfubolta eftir 76:65-heimasigur á Snæfelli í gærkvöldi. Hefur Keflavík unnið alla sex leiki sína til þessa. Grindavík er í öðru sæti með tíu stig eftir 84:71-sigur á Haukum á útivelli

Keflavík er með fullt hús stiga á toppi úrvalsdeildar kvenna í körfubolta eftir 76:65-heimasigur á Snæfelli í gærkvöldi. Hefur Keflavík unnið alla sex leiki sína til þessa. Grindavík er í öðru sæti með tíu stig eftir 84:71-sigur á Haukum á útivelli. Íslandsmeistarar Vals unnu 73:69-heimasigur á Fjölni og nýliðar Þórs höfu betur gegn Breiðabliki í Kópavogi, 92:71. » 22