Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur sagt upp samningi Bandaríkjamannsins Michael Steadman. Í yfirlýsingu félagsins kemur fram að Steadman hafi ekki staðið undir væntingum og var samningi hans því rift
Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur sagt upp samningi Bandaríkjamannsins Michael Steadman. Í yfirlýsingu félagsins kemur fram að Steadman hafi ekki staðið undir væntingum og var samningi hans því rift. Breiðablik var ekki lengi að finna nýjan leikmann í staðinn fyrir Steadman, því félagið hefur samið við Zoran Vrkic. Vrkic, sem er króatískur, þekkir vel til körfuboltans á Íslandi, því hann hefur leikið bæði með Tindastóli og Grindavík.