— Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Þórunn Högnadóttir, stílisti og fagurkeri, er ein þeirra sem eru að fara að halda upp á hrekkjavökuna í fyrsta skipti. Þórunn er fræg fyrir að fara alla leið þegar um veisluhöld er að ræða og hrekkjavakan er þar engin undantekning

Sjöfn Þórðardóttir

sjofn@mbl.is

Þórunn Högnadóttir, stílisti og fagurkeri, er ein þeirra sem eru að fara að halda upp á hrekkjavökuna í fyrsta skipti. Þórunn er fræg fyrir að fara alla leið þegar um veisluhöld er að ræða og hrekkjavakan er þar engin undantekning. Hún tók forskot á sæluna og útbjó hrollvekjandi hrekkjavökuhlaðborð þar sem hún tók þemað alla leið.

Í fyrsta skipti sem ég skreyti fyrir hrekkjavökuna

„Mér fannst þetta einstaklega gaman og í fyrsta skipti sem ég skreyti og geri smárétti fyrir hrekkjavökuna. Við fjölskyldan ætlum að fara alla leið og halda hrekkjavökupartí á laugardaginn næstkomandi og allir verða í búningum,“ segir Þórunn og er orðin spennt fyrir hrekkjavökuboðinu ógurlega.

Hrekkjavökuhlaðborðið hennar er hlaðið tryllingslegum kræsingum þar sem óvættir og skrímsli eru í alls konar formum. Á borðinu má finna fullt af skemmtilegum og frumlegum hugmyndum að kræsingum sem eiga vel heima í hrekkjavökupartíinu og auðvelt er fyrir alla að útbúa. Svarti liturinn, kóngulóarvefir og hauskúpur eru í forgrunni og drungalegt yfirbragð yfir öllu. Blöðrufígúrurnar eru ógurlegar í bland við gyllta litinn sem fær að brjótast aðeins í gegn við hrekkjavökuhlaðborðið.

Skrautið fékk Þórunn á eftirfarandi stöðum:

Blöðruboginn frá www.tilefni.is Rakel og Hanna

Blöðrukóngulær Blaðrarinn/Daniel

Hauskúpur á borði fást í versluninni A4

Diskar, leðurblökublaðra, pappaleðurblökur á kertastjökum eru frá Confettisisters.

Hráskinkuaugu

2 bréf hráskinka

1 box mozzarellakúlur

Vefjið hráskinku utan um mozzarellakúluna, notið svartan matarlit og gerið augastein. Notið tómatsósu til að gera æðar og notið tannstöngul til verksins.

Múmíukökupinnar

1 pk. BC-kökumix, notið sömu aðferð og við kökuna

1 box BC-súkkulaðikrem

1 túpa hvítur glassúr

Myljið saman kökuna ásamt helmingnum af kreminu. Búið til litlar kúlur. Bræðið hvítt súkkulaði, stingið röri í súkkulaðið og í kúluna og kælið. Hyljið kúlurnar með súkkulaðinu og kælið. Setjið síðan glassúrinn yfir og notið svartan matarlit til að gera augu.

Hrekkjavökubollakökur

1 pk. Betty Crocker mix

250 g smjör, brætt

250 ml mjólk

2 tsk. vanilludropar

½ dl kakóduft Konsum frá Nóa og Sírusi

3 stk. egg

Smá salt

Byrjið á því að hita ofninn í 180°C hita. Notið sömu aðferð og við köku að ofanverðu nema setjið deigið í bollakökuform. Bakið í skemmri tíma eða um 15 mínútur og notið sama smjörkrem og skreytið að vild.

Graskerspitsur

1 pk. pitsudeig að eigin vali

1 dós pitsasósa að eigin vali

1 box mozzarellakúlur

1 box pepperóní

Snæri

Kokteilpinnar

Byrjið á því að hita ofninn í 175°C hita. Fletjið út pitsadeigið, skiptið deiginu niður í 6 búta. Setjið pitsasósu, pepperóní, mozzzarellakúlu og lokið síðan. Bindið síðan saman og mótið grasker. Bakið í 15-20 mínútur við 175°C hita. Smyrjið með pískuðu eggi þegar graskerspitsurnar koma tilbúnar úr ofninum og fjarlægið snærið.

Múmíu-beikonpylsur með tómatsósu

1 pk. beikonpylsur

1 pk. pitsadeig að eigin vali

Byrjið á því að hita ofninn í 175°C hita. Fletjið deigið út og skerið í litlar ræmur, vefjið utan um pylsurnar. Smyrjið með eggi, setjið inn í ofn og bakið í 15-20 mínútur við 175°C hita.

Hauskúpusúkkulaðikaka með
kaffismjörkremi

1 pk. Betty Crocker mix

250 g smjör, brætt

250 ml mjólk

2 tsk. vanilludropar

½ dl kakóduft Konsum frá Nói og Sírus

3 stk. egg

Smá salt

Byrjið á því að hita ofninn í 180°C hita. Setjið allt hráefnið í hrærivél. Setjið síðan kökudeigið í 20 cm springform og bakið við 180°C í 45 mínútur. Kælið áður en kreminu er smurt yfir kökuna.

Kaffismjörkrem

250 g smjör, við stofuhita, skorið í litla kubba

250 g smjörlíki, við stofuhita, skorið í litla kubba

2 tsk. vanilludropar

1 pk. flórsykur

Smá salt

1 espresso-kaffi, kalt

1 túpa Starter-kökulitur

Þeytið smjör og smjörlíki vel saman þangað til blandan er orðin létt og ljós. Bætið við kaffi, vanilludropum ásamt salti og bætið loks við flórsykri. Skreytið kökuna að lokum með hvítum hauskúpum (úr plasti) og súkkulaðihauskúpum.

Ostalíkkistusamlokur

1 stk. stórt samlokubrauð, skorið út eins líkkistur, sjá mynd

1 pk. rifinn ostur

4 stk. pepperóní, notað til skera út krossa

Ólífuolía eða smjör til steikingar

Setjið samlokurnar saman eins og venjulegar samlokur og steikið á meðalheitri pönnu þar til tilbúið og osturinn verður bráðinn.

Súkkulaði- og lakkrískústar

6 stk. brauðstangir, t.d. Grisini

100 g suðusúkkulaði brætt

1 poki lakkrísreimar

Berið brætt súkkulaði á brauðstangirnar. Klippið lakkrísreimarnar niður og raðið neðst á brauðstangirnar.