Meiddur Gabriel Jesus verður frá í einhvern tíma vegna meiðsla í læri.
Meiddur Gabriel Jesus verður frá í einhvern tíma vegna meiðsla í læri. — AFP/Cristina Quicler
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Gabriel Jesus sóknarmaður Arsenal gæti verið frá í einhvern tíma vegna meiðsla í læri sem hann varð fyrir í 2:1-sigri liðsins á Sevilla í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn var

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Gabriel Jesus sóknarmaður Arsenal gæti verið frá í einhvern tíma vegna meiðsla í læri sem hann varð fyrir í 2:1-sigri liðsins á Sevilla í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn var. „Hann bað strax um skiptingu, sem eru ekki góðar fréttir því Gabriel er ekki leikmaður sem gerir það, aldrei nokkurn tímann,“ sagði knattspyrnustjórinn hans Mikel Arteta í samtali við TNT Sports eftir leikinn.