Hafnarfjörður Ólafur Guðmundsson verður áfram hjá FH-ingum.
Hafnarfjörður Ólafur Guðmundsson verður áfram hjá FH-ingum. — Morgunblaðið/Eggert
Knattspyrnumaðurinn Ólafur Guðmundsson, varnarmaður FH og íslenska U21-árs landsliðsins, hefur greint frá því að hann hafi skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Hafnarfjarðarfélagið í sumar þó ekki hafi verið tilkynnt um það fyrr en í síðustu viku

Knattspyrnumaðurinn Ólafur Guðmundsson, varnarmaður FH og íslenska U21-árs landsliðsins, hefur greint frá því að hann hafi skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Hafnarfjarðarfélagið í sumar þó ekki hafi verið tilkynnt um það fyrr en í síðustu viku. Í samtali við Fótbolta.net kvaðst Ólafur ekki vita hvers vegna ekki hefði verið tilkynnt um nýjan samning hans fyrr en um fjórum mánuðum síðar. Hann lék 26 leiki með FH á síðustu leiktíð.